Sumarleyfi prestanna í Borgarfjarðarprófastsdæmi árið 2010 verða sem hér segir:
Borgarprestakall
Prófasturinn sr. Þorbjörn Hlynur Árnason á Borg verður í sumarleyfi 1. til 11. júlí og í ágúst.
Í sumarleyfi hans tekur sr. Flóki Kristinsson, sóknarprestur á Hvanneyri að sér forfallaþjónustu 1. -11. júlí og sr. Elínborg Sturludóttir, sóknarprestur í Stafholti, í ágúst.
Garðaprestakall (Akranes)
Sóknarpresturinn, sr. Eðvarð Ingólfsson tekur fyrri hluta sumarleyfis síns 14. júní til 6. júlí.
Seinni hluti sumarleyfis hans er frá 25. júlí til 14. ágúst.
Sr. Kristinn Jens Sigþórsson í Saurbæ sér um forfallaþjónustu í sumarleyfi sr. Eðvarðs.
Hvanneyrarprestakall
Sóknarpresturinn sr. Flóki Kristinsson verður í sumarleyfi frá 12. júlí - 13. ágúst.
Í sumarleyfi hans tekur sr. Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti, að sér forfallaþjónustu í prestakallinu.
Reykholtsprestakall
Sóknarpresturinn sr. Geir Waage verður í sumarleyfi frá seinni hluta september til loka október.
Í sumarleyfi hans tekur sr. Flóki Kristinsson, sóknarprestur á Hvanneyri, að sér forfallaþjónustu í prestakallinu.
Saurbæjarprestakall
Sóknarpresturinn sr. Kristinn Jens Sigþórsson tekur sumarleyfi sitt viku og viku í senn, frá júlí til september.
Stafholtsprestakall
Sóknarpresturinn sr. Elínborg Sturludóttir verður í sumarleyfi í júlí
Í sumarleyfi hennar tekur sr. Flóki Kristinsson að sér forfallaþjónustu til 11. júlí og sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur á Borg, frá 12. til 31. júlí.