Dymbilvika og Páskar

Því miður hefur flipinn Messur_2011 á vefsíðunni bilað. Ekki hefur enn verið hægt að koma honum í lag. Hann á að sýna yfirlit yfir helgihaldið á kirkjunum í Borgarfirði. Af þessum sökum birtist yfirlit yfir helgihaldið um hátíðarnar hérna.


Helgihald í Borgarfirði í kyrruviku og um páska 2011

17. apríl - Pálmasunnudagur (Dymbilvika)
Akraneskirkja, fermingarguðsþjónusta kl. 10:30 og 14
Borgarneskirkja, fermingarguðsþjónusta kl. 11
Reykholtskirkja, messa kl. 14 - ferming
*Pílagrímaganga. Farið frá Síðumúlakirkju kl. 10 og gengið að Gilsbakkakirkju. Vegalengd ca. 21 km og áætlaður göngutími 5 klst.

21. apríl - Skírdagur (sumardagurinn fyrsti)
Akraneskirkja, skátamessa kl. 11
Leirárkirkja, messa kl. 11
Hallgrímskirkja í Saurbæ, tónleikar kl. 14. Orgeltónlist og ísl. kirkjusöngvar. Marta Guðrún Halldórsdóttir söngkona og Örn Magnússon organisti. Á tónleikunum er blandað saman orgeltónlist barokktímans og íslenskum kirkjusöngvum. Verk meðal annars eftir Bach, Buxtehude og Jón Leifs.
Hallgrímskirkja í Saurbæ, tónleikar kl. 17. Kór Saurbæjarprestakalls syngur sálma Hallgríms
Péturssonar við yngri og eldri lög.
Um kvöldið kl. 20:30 verður kvöldstund í kirkjunni með ljóðalestri og tónlist. Fram koma Gunnar Kvaran sellóleikari og Haukur Guðlaugsson organisti ásamt Ísak Harðarsyni, sem les ljóð úr ljóðabók sinni "Rennur upp um nótt."
Borgarneskirkja, fermingarguðsþjónusta kl. 11
Hvanneyrarkirkja, messa kl. 21
Stafholtskirkja, messa kl. 20:30
* Pílagrímaganga. Gengið frá Gilsbakkakirkju kl. 10 og haldið að Stóru-Ásskirkju.

22. apríl - Föstudagurinn langi
Akraneskirkja, Passíusálmar lesnir í kirkjunni
Hallgrímsprestakall, Þrautarganga í Saurbæjarhlíð. Gangan hefst kl. 10:30 við Hallgrímskirkju og endar við Ferstikluskála. Súpa og brauð í Ferstiklu í boði fyrir göngufólk að göngu lokinni. Leiðangursstjórar: Heiðrún Sveinbjörnsdóttir og Jón Valgarðsson, Eystra-Miðfelli. Skráning hjá Ingu Ingvarsdóttur: laxarbakki@gmail.com.
Sjá:
http://www.hvalfjardarsveit.is
Hallgrímskirkja í Saurbæ, krossvaka kl. 13:30 - 19. Sigurður Skúlason leikari les Passíusálma
Hallgríms Péturssonar. Orgelspuni um efni sálmanna milli lestra hverra 10 sálma.
Borgarneskirkja, helgistund og lestur Passíusálma kl. 14
Hvanneyrarkirkja, guðsþjónusta kl. 15
Reykholtskirkja, guðsþjónusta kl. 22
Hvammskirkja, guðsþjónusta kl. 14

23. apríl - Aðfangadagur páska
*Pílagrímaganga. Gengið frá Stóra-Ásskirkju kl. 10 að Reykholtskirkju.
Reykholtskirkja
, páskavaka kl. 23:30.
Samstarfsverkefni Reykholts-, Stafholts- og Hvanneyrarprestakalls.

24. apríl - Páskadagur
Akraneskirkja, hátíðarguðsþjónusta kl. 11
Borgarneskirkja, hátíðarguðsþjónusta kl. 8. Morgunverður og samvera í safnaðarheimilinu að lokinni guðsþjónustu.
Hallgrímskirkja í Saurbæ, Hátíðarmessa – Hjartað fagnar - kl: 11:00. Í messunni frumflytur Kór Saurbæjarprestakalls tónverkið „Hjartað fagnar“ eftir Báru Grímsdóttur, sem er samið við upprisusálm  Hallgríms Péturssonar. Verkið sem er fyrir blandaðan kór og orgel er samið fyrir Kór Saurbæjarprestakalls.
Borgarkirkja, hátíðarguðsþjónusta kl. 14
Hvanneyrarkirkja, messa kl. 11
Bæjarkirkja, messa kl. 14
Gilsbakkakirkja, guðsþjónusta kl. 11
Reykholtskirkja, guðsþjónusta kl. 14
Norðtungukirkja, hátíðarguðsþjónusta kl. 14

25. apríl - Annar í páskum
Sjúkrahús Akraness, hátíðarguðsþjónusta kl. 11
Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi, guðsþjónusta kl. 16:30
Dvalarheimilið Höfði, hátíðarguðsþjónusta kl. 12:45
Lundarkirkja, messa kl. 14
Síðumúlakirkja, guðsþjónusta kl. 11

Breyting á prófastsdæminu

Prófastsdæmi sameinuð
Nýafstaðið Kirkjuþing sem lauk störfum 20. nóvember sl. samþykkti meðal annarra mála að fækka prófastdæmum landsins.
Meðal breytinga er að Borgarfjarðarprófastsdæmi og Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi sameinast. Heiti hins sameinaða prófastsdæmis verður
Vesturlandsprófastsdæmi.

Biskup Íslands hefur ákveðið að á meðan undirbúningur sameiningarinnar standi yfir, setji hann sr. Þorbjörn Hlyn Árnason, sóknarprest í Borgarprestakalli til að gegna embætti prófasts frá og með 1. desember fram til 31. janúar 2011.



Prófastur hins nýja sameinaða Vesturlandsprófastsdæmis verður væntanlega skipaður frá og með 1. febrúar 2011.

Fréttir

Reykholtskirkja 

Allra heilagra messa 
Sunnudaginn 7. nóvember kl. 14.00

Kvennakórinn Vox feminae og Reykholtskórinn  syngja messuna

Stjórnendur: Margrét Pálmadóttir og Bjarni Guðráðsson

Að vanda hefst vetrarstarf Reykholtskirkju með messu á  Allra Heilagra messu sunnudaginn 7. nóvember kl. 14.00.

Þá mun  kvennakórinn Vox Feminae   ásamt Reykholtskórnum syngja  Missa de Angelis.
Stjórnandi kvennakórsins  er Margrét J. Pálmadóttir en Reykholtskórsins Bjarni Guðráðsson.
Í  messunni mun Vox Feminae syngja mótettuna O Magnum Mysterium.

Mörg undanfarin ár  hefur kvennakórinn Vox Feminae haldið trúarlega tónleika í tengslum við Allra Heilagra messu.
Að þessu sinni flytur kórinn sína uppáhaldstónlist, undurfögur trúarleg verk frá endurreisnartímanum, m.a. eftir tónskáldin Palestrina, Orlando di Lasso og Tomás Luis de Victoria. Auk þeirra flytur kórinn tvö sálma eftir Þorkel Sigurbjörnsson sem, þótt nýir séu, bera með sér stílbragð liðins tíma.

Kórinn mun flytja hluta þessarar dagskrár í og eftir messu í Reykholtskirkju, en þetta er annað árið sem Vox feminae syngur í  Reykholti  á Allra Heilagra messu.

Tónleikar í Saurbæjarkirkju

Ég kveiki á kertum mínum
 
Mánudagsmenning í Hallgrímskirkju í Saurbæ, 1. nóvember kl. 21.
 
Kammerkór Akraness
á trúarlegum nótum og flytur fagra kórtónlist sem tengist
Allra heilagra messu. Dagskráin er að mestu uppbyggð af íslenskum sálmum- og sálmalögum.
Vonum við að tónleikagestir eigi eftir að eiga notalega kvöldstund í þessu fallega guðshúsi.
 
Stjórnandi er Sveinn Arnar Sæmundsson.
Meðleikari er Jón Bjarnason.

 

Aðgangsseyrir er kr. 1.500 en ekki er tekið við greiðslukortum.

Messa og tónleikar í Reykholti 11. júní 2010

Sunnudagur 11. júlí  

Messa í Reykholtskirkju kl. 14:00
Unglingakór frá Ástralíu, kór St. Michael´s Grammar School í Melbourne tekur þátt í messunni




Tónleikar í Reykholtskirkju kl. 16:00 


Kór St. Michael´s Grammar School – Melbourne, sem er skipaður unglingum á aldrinum 13 – 18 ára. Kórinn hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir flutning sinn. Þau munu flytja fjölbreytta og vandaða efnisskrá sem spannar a.m.k. fimm aldir og heiminn allan!
Kór St Michael’s Grammar School kemur hingað í sinni fjórðu Evrópureisu sem þau fara í júní og júlí 2010.  Kórinn er skipaður söngvurum sem þreytt hafa inntökupróf og koma úr fimm öðrum kórum sem starfræktir eru við skólann. Kórinn var stofnaður fyrir tuttugu árum og hefur Dr. Gary Ekkel stjórnað honum síðan 1996. Auk reglulegs tónleikahalds syngur kórinn við vikulega guðsþjónustu í skólanum og flytur á hverju ári stórt kórverk með hljómsveit, nefna má Messías eftir Handel, Nelson messu Haydns, sálumessur eftir Mozart og Fauré, Carmina Burana eftir Carl Orff auk óperunnar Dido og Aeneas eftir Purcell og African Sanctus eftir David Fanshawe.
Kórinn hefur í tvígang komist í úrslit Llangollen Eisteddfod keppninnar í Wales og vann Ehrenpreis verðlaun Vienna International Youth and Music keppninnar árið 2005, auk þess að verða þess heiðurs aðnjótandi að koma fram við verðlaunaafhendingu hátíðarinnar.  Þá hefur kórinn tekið upp tónlist á þrjá geisladiska, þann fyrsta árið 1999.


EFNISSKRÁ:
The Entrance of the Queen fromThe Play of Daniel
Anonymous Spanish carol Riu, riu
Thomas Morley Fire! Fire!
Passerau Il est bel est bon
Clement Janequin Fyez vous y
Jan Dismas Zelenka Ave regina caelorum
Johann Pachelbel Magnificat
Johann Sebastian Bach ‘Domine Deus’ from the ‘Gloria’ of the B minor Mass
Dietrich Buxtehude Ihr lieben Christen
Jean-Marie Leclair Sonata in G major for Baroque flute and organ
Egil Hovland Saul
Karl Jenkins Agnus Dei and ‘God shall wipe away all tears’ from theThe Armed Man: A Mass for Peace
Peter Sculthorpe An Autumn Song(Australian)
Stephen Leek South Australia(Australian)
Hogan (eg.) Every time I feel the spirit movin’ in my heart
Spiritual (arr. Bob Chilcott) Were you there?
Keith Hampton Praise His Holy name.

Um kór St. Michael‘s Grammar School – Melbourne
Kór St Michael’s Grammar School kemur hingað í sinni fjórðu Evrópureisu sem þau fara í júní og júlí 2010.  Kórinn samanstendur af söngvurum sem þreytt hafa inntökupróf og koma úr fimm öðrum kórum sem starfræktir eru við skólann.  Kórinn var stofnaður fyrir tuttugu árum og hefur Dr. Gary Ekkel stjórnað honum síðan 1996.  Auk reglulegs tónleikahalds syngur kórinn við vikulega guðsþjónustu í skólanum og flytur á hverju ári stórt kórverk með hljómsveit, nefna má Messías eftir Handel, Nelson messu Haydns, sálumessur eftir Mozart og Fauré, Carmina Burana eftir Carl Orff auk óperunnar Dido og Aeneas eftir Purcell og African Sanctus eftir David Fanshawe.
Kórinn hefur í tvígang komist í úrslit Llangollen Eisteddfod keppninnar í Wales og vann Ehrenpreis verðlaun Vienna International Youth and Music keppninnar árið 2005, auk þess að verða þess heiðurs aðnjótandi að koma fram við verðlaunaafhendingu hátíðarinnar.  Þá hefur kórinn tekið upp tónlist á þrjá geisladiska, þann fyrsta árið 1999.