Dymbilvika og Páskar

Því miður hefur flipinn Messur_2011 á vefsíðunni bilað. Ekki hefur enn verið hægt að koma honum í lag. Hann á að sýna yfirlit yfir helgihaldið á kirkjunum í Borgarfirði. Af þessum sökum birtist yfirlit yfir helgihaldið um hátíðarnar hérna.


Helgihald í Borgarfirði í kyrruviku og um páska 2011

17. apríl - Pálmasunnudagur (Dymbilvika)
Akraneskirkja, fermingarguðsþjónusta kl. 10:30 og 14
Borgarneskirkja, fermingarguðsþjónusta kl. 11
Reykholtskirkja, messa kl. 14 - ferming
*Pílagrímaganga. Farið frá Síðumúlakirkju kl. 10 og gengið að Gilsbakkakirkju. Vegalengd ca. 21 km og áætlaður göngutími 5 klst.

21. apríl - Skírdagur (sumardagurinn fyrsti)
Akraneskirkja, skátamessa kl. 11
Leirárkirkja, messa kl. 11
Hallgrímskirkja í Saurbæ, tónleikar kl. 14. Orgeltónlist og ísl. kirkjusöngvar. Marta Guðrún Halldórsdóttir söngkona og Örn Magnússon organisti. Á tónleikunum er blandað saman orgeltónlist barokktímans og íslenskum kirkjusöngvum. Verk meðal annars eftir Bach, Buxtehude og Jón Leifs.
Hallgrímskirkja í Saurbæ, tónleikar kl. 17. Kór Saurbæjarprestakalls syngur sálma Hallgríms
Péturssonar við yngri og eldri lög.
Um kvöldið kl. 20:30 verður kvöldstund í kirkjunni með ljóðalestri og tónlist. Fram koma Gunnar Kvaran sellóleikari og Haukur Guðlaugsson organisti ásamt Ísak Harðarsyni, sem les ljóð úr ljóðabók sinni "Rennur upp um nótt."
Borgarneskirkja, fermingarguðsþjónusta kl. 11
Hvanneyrarkirkja, messa kl. 21
Stafholtskirkja, messa kl. 20:30
* Pílagrímaganga. Gengið frá Gilsbakkakirkju kl. 10 og haldið að Stóru-Ásskirkju.

22. apríl - Föstudagurinn langi
Akraneskirkja, Passíusálmar lesnir í kirkjunni
Hallgrímsprestakall, Þrautarganga í Saurbæjarhlíð. Gangan hefst kl. 10:30 við Hallgrímskirkju og endar við Ferstikluskála. Súpa og brauð í Ferstiklu í boði fyrir göngufólk að göngu lokinni. Leiðangursstjórar: Heiðrún Sveinbjörnsdóttir og Jón Valgarðsson, Eystra-Miðfelli. Skráning hjá Ingu Ingvarsdóttur: laxarbakki@gmail.com.
Sjá:
http://www.hvalfjardarsveit.is
Hallgrímskirkja í Saurbæ, krossvaka kl. 13:30 - 19. Sigurður Skúlason leikari les Passíusálma
Hallgríms Péturssonar. Orgelspuni um efni sálmanna milli lestra hverra 10 sálma.
Borgarneskirkja, helgistund og lestur Passíusálma kl. 14
Hvanneyrarkirkja, guðsþjónusta kl. 15
Reykholtskirkja, guðsþjónusta kl. 22
Hvammskirkja, guðsþjónusta kl. 14

23. apríl - Aðfangadagur páska
*Pílagrímaganga. Gengið frá Stóra-Ásskirkju kl. 10 að Reykholtskirkju.
Reykholtskirkja
, páskavaka kl. 23:30.
Samstarfsverkefni Reykholts-, Stafholts- og Hvanneyrarprestakalls.

24. apríl - Páskadagur
Akraneskirkja, hátíðarguðsþjónusta kl. 11
Borgarneskirkja, hátíðarguðsþjónusta kl. 8. Morgunverður og samvera í safnaðarheimilinu að lokinni guðsþjónustu.
Hallgrímskirkja í Saurbæ, Hátíðarmessa – Hjartað fagnar - kl: 11:00. Í messunni frumflytur Kór Saurbæjarprestakalls tónverkið „Hjartað fagnar“ eftir Báru Grímsdóttur, sem er samið við upprisusálm  Hallgríms Péturssonar. Verkið sem er fyrir blandaðan kór og orgel er samið fyrir Kór Saurbæjarprestakalls.
Borgarkirkja, hátíðarguðsþjónusta kl. 14
Hvanneyrarkirkja, messa kl. 11
Bæjarkirkja, messa kl. 14
Gilsbakkakirkja, guðsþjónusta kl. 11
Reykholtskirkja, guðsþjónusta kl. 14
Norðtungukirkja, hátíðarguðsþjónusta kl. 14

25. apríl - Annar í páskum
Sjúkrahús Akraness, hátíðarguðsþjónusta kl. 11
Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi, guðsþjónusta kl. 16:30
Dvalarheimilið Höfði, hátíðarguðsþjónusta kl. 12:45
Lundarkirkja, messa kl. 14
Síðumúlakirkja, guðsþjónusta kl. 11